Meirapróf

Meirapróf í staðnámi

Í samvinnu við Nýja Ökuskólann auglýsir Ekill ökuskóli í fyrsta sinn staðnámskeið á Höfuðborgarsvæðinu.

Námskeiðið fer fram frá Menntaskólanum í Kópavogi. Kennt er föstudag - mánudags frá 18.október - 11.nóvember.


Smelltu á mynd til að stækka stundaskrá 

Stutt lýsing á námi til aukinna ökuréttinda

Meirapróf á rútu, vörubíl og leigubil. Inntökuskilyrði: Til að fá inngöngu í skólann þarf viðkomandi að hafa almenn ökuréttindi (fullnaðarskírteini) og uppfylla aðrar þær reglur sem hið opinbera setur. Hægt er að hefja nám 6 mánuðum áður en réttindaaldri er náð. Réttindaaldur á litla vörubifreið er 18 ár, vörubifreið og vörubifreið með eftirvagni er 21 ár, á leigubifreið er það 20 ár en réttindaaldur fyrir hópbifreið er 23 ár. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókn til sýslumanns um aukin ökuréttindi.

 

Skráning á staðnámskeið í Reykjavík